23apríl
Ég var að pæla hvort að ég ætti eitthvað að vera að halda áfram á að blogga hérna þar sem ég er komin heim.
Er fólk eitthvað að skoða þessa síðu?! :)
24ágúst
Jæja.. nú er akkúrat vika þangað til ég fer út... ég hætti að vinna á miðvikudaginn, það var semsagt seinasti dagurinn minn..
í gær tók ég til í herberginu mínu, flokkaði bækur, hvað á að selja og gefa orra og eitthvað.. og vá! það sést í skrifborðið mitt! ég held að ég hafi bara ekki séð í það í marga mánuði.. greinilega kominn tími á þetta...
svo í morgun þá tæmdi ég herbergið mitt, setti dót inní skáp, pakkaði niður í kassa og tók helling af drasli niður af veggjunum. Þreif herbergið og það er galtómt! mér liður eiginlega hálf skringilega.. ég hef aldrei flutt.. ég hef aldrei átt svona tómt herbergi... ég er alltaf svona smá og smá að fatta það að ég sé að fara út...
Ég fór í ökumat í gær.. gott að gera það áður en maður fer út.. þar sem maður á nú ekki eftir að keyra í ár.. það er pínu bömmer.. en ætti svosem að vera í lagi...
svo þarf ég bara að redda ýmsu í dag og eftir helgi... og svo ætla ég að byrja að pakka um helgina... gera þetta bara svona hægt og rólega svo maður gleymi nú ekki einhverju... ég kvíði reyndar pínu fyrir því.. ég t.d. var að pæla í hvaða peysur ég ætti að hafa með mér.. taldi upp einhverjar nokkrar og svo aðeins fleiri.. og svo já.. ég alltof mikið af peysum! en mig langar svo að hafa flestar með.. þannig að þetta verður erfitt val.. 20 kíló er nú alls ekki mikið fyrir heilt ár...
Svo fer maður í það að kveðja alla.. vá það verður erfitt... ég kvíði eiginlega fyrir því...
vá hvað þetta er leiðinlegt blogg.. þið fyrirgefið ;)
En ætli þetta verði ekki bara seinasta bloggið á þessarri síðu í bili..
ég minni bara á
auduriausturriki.hexia.net verið svo dugleg að kommenta þar ;)
öll myndasagan bæææj
20ágúst
ég var að fá nokkrar myndir frá fjölskyldunni..

Mamman og pabbinn, þ.e. Maria og Karl

Oliver ('89) og Patrik ('79) og Maria (mamman)
svo var engin almennileg mynd af stelpunni..
ég var að búa mér til nýja síðu sem heitir einfaldlega
auduriausturriki.hexia.net ég s.s. hætti við að nota bloggar.is
tjáh
08ágúst
Jæja.. í gær fékk ég bréf í pósti sem var frá konu sem verður fósturmamma mín og með því fylgdu nokkrar myndir. Það voru reyndar ekki miklar upplýsingar í því bréfi en einhverjar og ég var bara í hamingjuvímu að vera komin með fjölskyldu!
Í dag fékk ég svo póst frá AFS slatti af blöðum með ýmsum upplýsingum og þar á meðal um fjölskylduna. Nú skal ég segja aðeins frá henni:
Það eru mamma og pabbi. Þau eiga 3 börn; tvo stráka ('79 og '89) og eina stelpu ('82) tvö elstu eru flutt að heiman og strákurinn sem er jafn gamall mér býr heima, hann er samt eldri en ég þannig að ég verð yngst á heimilinu sem er nokkuð skondið.
Mamman er heimavinnandi og pabbin vinnur við eitthvað sem ég man ekki hvað er.. eitthvað tækni og að sjá um fyrirtæki. Eldri strákurinn var að vinna í London er fluttur heim og er að fara að læra eitthvað. Stelpan vinnur í banka og býr í næsta þorpi. Yngri strákurinn er að vinna við eitthvað sem ég er ekki alveg viss hvað er.. kannski á búgarði.
Þau eiga heima í
Böheimkirchen (sem er þorp) og ég mun fara í skólann BORG (
Bundesoberstufenrealgymasium) í
St. Pölten (sem er borg) og mun væntanlega taka lest þangað hvern einasta morgunn, það mun vera mjög spennandi þar sem ég er hálf hrædd við lestir.
Þau eiga 1 hund og 2 ketti sem er frábært! ég er svo ótrúlega ánægð með það, ég get ekki hugsað mér hundlaust ár hehe.. og kettirnir eru bara plús elska ketti líka
Þau fara hvert ár í skíðaferð í eina viku! :D
Jæja.. hvernig lýst svo fólki á?
31júlí
Ég ætla að blogga í tilefni þess að júlí er alveg að verða búinn... eftir ca 4 tíma verður kominn ágúst... sem er eiginlega bæði gott og vont.. :/
gott af því að
- þá er syttra eftir af vinnunni
- þá styttist i Austurríki
- syttra í að ég fái að hitta rakel
vont af því að
- þá er sumarið alveg að verða búið
- þá styttist í Austurríki
- þá styttist í að ég þurfi að kveðja alla
ég á bara eftir að fá 2 frí áður en ég hætti í vinnunni.. það er svo lítið.. þetta líður allt svo hratt.. ég s.s. hætti 22. ágúst.. þá hef ég rúma viku til að gera allt áður en ég fer út.. sem verður 31. ágúst kl 09:40 þá flýg ég til Kaupmannahafnar og þaðan flýg ég til Vínarborgar og svo fer ég beint á AFS-námskeið og verð þar fyrstu dagana.. svo fer ég til fjölskyldunnar minnar sem ég er ekki búin að fá.. sem er svekk.. en ég er reyndar búin að ,,heyra" um að ég fái fjölskyldu í Böheimkirchen og verð þá í skóla í st. Pölten frá Rakel sem hafði samband við konu hjá AFS úti.. en það er samt ekki 100% svo ég bíð bara spennt... stundum of spennt.. tékka póstinn minn alveg nokkrum sinnum á dag.. haha... get ekki beðið!
Afmælisdagurinn minn sem var seinasta fimmtudag var alveg ágætur bara.. vaknaði seint og opnaði pakkann frá mömmu og pabba sem var myndavél! :D mjög ánægð með það svo horfði ég á "stranger than fiction" i tölvunni ásamt því að borða seigdamer sem er nammi frá Noregi sem ég er búin að vera að spara síðan í fríhöfninni þar.. vá! hvað það er gott nammi! bara best.. enda var ég ekki lengi að stúta þessu :P svo fór ég bara út með hundinn í rigningunni sem var nokkuð næs.. svo var það bara eitthvað dunderí...
jæja.. hef ekki mikið meira að segja..


Namminamm!!!! :P:P:P
18júlí
Jæja.. blogg segiði? ég hef mjög lítið að segja frá held ég.. líf mitt er mjög einfalt.. ég er aðalega vinna.. eins og þið vitið örugglega..
en ég var semsagt í fríi á mánudaginn.. geðveikt veður þá.. reyndar eins og í dag.. og í gær.. en já allvega þá eyddi ég mjög góðum tíma í sólbaði.. og auðvitað með þeim afleiðingum að ég sólbrann svona roslalega.. ekki gott... en bruninn er búinn að minnka núna.. sem betur fer..
ég og rakel erum að pæla í að fara í útilegu um næstu helgi! :D þar að segja frá laugardegi til sunnudags.. þar sem ég fékk bara frí á sunnudaginn.. en það er ágætt.. og ætli við tökum ekki eitthvað fleira fólk með okkur og höfum það úber gaman :)
ég er búin að vera að blaða í gegnum fullt af "cosmpolitan hair & beauty" blöðum þar sem ég hef ákveðið að klippa á mér hárið öðruvísi en venjulega.. enda alveg kominn tími til... er að pæla í að klippa það frekar stutt.. er reyndar búin að finna klippingu í einu blaðinu sem ég get ekki beint lýst.. en hún er geðveikt kúl.. er að pæla í að fá mér bara hana.. :) og líka strípur.. hárið á mér er orðið svo dökkt! :/ ég verð að reyna að lýsa það..
en já ég bara held að ég hafi ekkert merkilegt að segja í viðbót.. tíminn líður alveg fáránlega hratt og alltof stutt þangað til ég fer út.. ég fæ stundum svona stressköst þegar ég pæli mikið í því.. en ekkert alvarlegt.. :) ég hlakka líka rosalega til að fara út.. mjög gaman að pæla í öllu því sem ég gæti verið að fara að gera þarna úti.. :D þetta verður geðveikt!
Annars er ég með æði fyrir Kooks þessa stundina var að redda mér nýjasta disknum þeirra ásamt mörgum öðrum diskum.. þeir eru algjört æði.. og bestu lögin eru nottla "she moves in her own way" og "naive" svo endilega kíkkið á þau á youtube eða eitthvað ;)
07júlí
OMFG 07.07.07 er í dag! merkilegt!
16júní
Jæja.. ég hef ákveðið að blogga..
ég náði öllum mínum prófum.. þrjár 8, ein 7, tvær 6 og mín fyrsta fokklings 5... jæja.. er svosem sátt miðað við hvað ég var ógeðslega löt og kærulaus.. ég verð eiginlega að viðurkenna það að ég held að ég hafi aldrei verið jafn kærulaus í prófatíð..
annars er ég búin að vera í fríi frá seinasta prófi fram á fimmtudag.. byrjaði að vinna í gær.. já.. þessi blessaða vinna.. hún er allt í lagi.. skárra fólk en í fyrra held ég..ágætt stemming bara.. mjög margar nýjar.. þá er ég orðin geðveikt ,,góð" hehe.. góð í að þrífa og búa um rúm.. já það er sko hægt! ég get tekið ykkur í kennslu ef þið hafið áhuga ;)
Í þessu fríi gerði ég ekki margt.. fór reyndar mikið á bókasafnið.. ^_^ fann mér þar nokkur bliss blöð ásamt mínu heitt elskaða manga.. ójá.. búin að lesa ca 8 bækur eða svo.. svo er maður búinn að reyna að vera í sólbaði.. ég höndla það ekkert vel... maður er eitthvað svo eirðarlaus... svo fór ég til tannlæknis.. já merkilegt nokkuð...
Ég er að fara að vinna á morgun kl 8! vúhú.. gleðilegan sautjánda júní.. hann verður ekki mjög gleðilegur hjá mér.. ég held ég fái frí næst.. uu... sunnudaginn og mánudaginn í næstu viku.. ég ætla allavega að reyna það.. þá verð ég búin að vinna 9 daga í röð... það hlýtur að vera ágætt..
Þetta er semsagt í annað skipti sem ég mun bara missa af 17. júní.. og auðvitað líka á næsta ári.. skólinn í austurríki er ekki búinn fyrr en í júlí.. svo ég er búin að plana það að ég ætla að vera í fríi 17. júní árið 2009 sama hvar ég verð að vinna :)
Ég ætla að beila á tattúinu mínu.. ég er ekki viss hvað mig langar í.. svo ég ætla ekki að fá mér bara eitthvað til að standa við loforðið.. og sitja svo uppi með eitthvað crappy tattú það sem er eftir af mínu blessaða lífi.. það gæti verið að ég fá mér bara úti.. :) maður verður orðinn 18 svo það er no problemmó... :P újeah..
veit ekkert hvað ég get skrifað hérna meira.. er að deyja úr þreytu.. bæði í fótunum og augunum..
31maí
Var að setja inn myndir frá Noregi! ég semsagt nenni ekki að læra meiri líffræði..
Þær eru bara frá tívolíinu og einhverju svaka túrista bryggjuhverfi í Osló þar sem var heeeellingur af skemmtilegum listaverkum ^_^
En já.. bara enjoy..
28maí
Your results:
You are Robin| Robin |
| 77% |
| Superman |
| 70% |
| Supergirl |
| 69% |
| Green Lantern |
| 65% |
| Spider-Man |
| 55% |
| Iron Man |
| 50% |
| Batman |
| 50% |
| Catwoman |
| 45% |
| Hulk |
| 45% |
| Wonder Woman |
| 44% |
| The Flash |
| 35% |
|
Young and acrobatic. You don't mind stepping aside to give someone else glory.
 |
Click here to take the Superhero Personality Test
Hvað eruð þið??